Hjólað í vinnuna

Ég hef hjólað mikið á höfuðborgarsvæðinu frá því ég var 22 ára. Þá átti ég lengst af heima innarlega á Kársnesi en var í skóla og vinnu á Grensás, Keldnaholti, HÍ, Miðbænum og Garðatorgi. Eftir að ég lauk námi hef ég alltaf unnið í útjaðri höfuðborgarsvæðisins af einhverri undarlegri ástæðu. Nú á ég á heima utarlega á Kársnesi en vinn upp í Mosfellsbæ. Þar áður var ég í Hafnarfirði. Þegar ég byrjaði á þessum vinnustöðum hætti ég að hjóla í vinnu í nokkra mánuði eða jafnvel ár. Ég varð að yfirvinna einhvern þröskuld í hvert skipti auk þess sem ætlast var til að maður væri á einkabíl í vinnunni. Þegar ég síðan steig yfir þröskuldinn og hjólaði í vinnuna uppgötvaði ég að þetta var ekki óyfirstíganlegt frekar en fyrri daginn og nú hjóla ég um 1-2 viku í í vinnu árið um kring. Ég skipulegg vinnuna þannig að ég þarf ekki að fara langt þá daga sem ég er á hjóli. Ég hef líka uppgötvað að strætó er ákjósanlegur ferðamáti saman með reiðhjólinu. Yfir veturinn, sérstaklega í slæmum veðrum, tek ég hjólið með í strætó frá Grensás upp í Mosó og kem því þokkalega ferskur og ósveittur í vinnu. Hef a.m.k. ekki ennþá verið rekin af kaffistofunni fyrir stæka svitalykt þótt ekki sé aðgangur að sturtu. Ég get skipt um föt og strýk svitann af með klút ef hann er einhver. Með strætó uppeftir svitnar maður varla neitt þrátt fyrir stuttan hjólatúr frá Kársnesi á Grensás.

Ég ætla að skrifa nokkrar leiðalýsingar undir titlinum „Hjólað í vinnuna“ á næstunni eftir því sem ég hef tíma til. Tilgangur skrifanna er tvíþættur. Vonandi hvetur þetta einhvern til að taka fram hjólið og prófa. Sá hin sami á eftir að uppgötva að hindranirnar eru fyrst og fremst í huga hans sjálfs en ekki í umhverfinu. Leiðalýsingarnar hjálpa líka vonandi öðrum að finna góðar leiðir, sem henta þeim til að hjóla milli áfangastaða.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilberg Helgason

Velkominn á Bloggið Árni. Gaman að sjá alvöru hjólreiðafólk hérna inni.

 En í pistlinum þínumhittir þú gjörsamlega naglann á höfuðið. Að það er bara að stíga yfir þröskulinn til að byrja að hjóla í vinnuna. Þetta er bara skref sem þarf að taka og þú kemur nákvæmnlega með það sem fólk þarf að heyra.  Það þarf ekki að hjóla alla daga og allt sem maður fer. Hjólreiðar er lífsstíll en ekki þráhyggja og því hægt að blanda því saman við aðra samgöngumáta, hvort sem það er strætó eða einkabílinn.

Ég bíð spenntur eftir frekari pistlum frá þér.

Kveðja Vilberg

Vilberg Helgason, 20.4.2009 kl. 19:34

2 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Blessaður Árni, velkominn á bloggið.  Líst vel á þetta hjá þér, ein leiðin sem er í myndaalbúminu er leiðin sem ég hjóla til að komast í Kópavogslaug. 

Ég hef einmitt gert töluvert af því að skoða leiðarlýsingar hjá þeim sem eru að hjóla, ég er ferlega áttavillt og villist endalaust, þannig ramba ég iðulega upp að Rauðavatni eða inn í Heiðmörk þegar ég ætla að fara eitthvert allt annað.  Ætla að bæta úr þessu með því að fara í hjólatúrana sem fjallahjólaklúbburinn verður með á þriðjudagskvöldum í sumar.

Hjóla-Hrönn, 20.4.2009 kl. 22:54

3 Smámynd: Árni Davíðsson

Þakka hlýjar kveðjur. Ég vona að ég standi undir þessum væntingum og að menn drepist ekki úr leiðindum að skoða myndir af götum, stígum og malbiki. Mikið af þeim stöðum sem ég hjóla um á leiðinni uppí Mosó eru ekki sérstaklega fallegir þótt fjallasýnin sé fögur. Verst er að þessar slóðir eru algjörlega mannlausar fyrir utan bílstjórana. Ég vona að það breytist í framtíðinni.

 Ég lít gjarnan á bloggin ykkar reglulega og  hef gaman að.

Árni Davíðsson, 23.4.2009 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Árni Davíðsson
Árni Davíðsson
Höfundur er líffræðingur og kennari í hjólafærni. Allar skoðanir höfundar eru hans eigin og skal ekki yfirfæra á aðra einstaklinga eða samtök. Tölvupóstur: arnid65@gmail.com

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • HI deiliskipulag
  • Akureyri 10 min kort
  • cars
  • Hagatorg
  • Ellidaarborg

Nýjustu myndböndin

Frá Birkimel á Eiðistorg

Frá Nesveg í Kópavog

Frá Suðurlandsbraut á Birkimel

Frá Eiðistorgi á Laugaveg

Kársnes Höfðabakkabrú Mosfellsbær

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband