Ekki slys

Þegar menn taka ákvörðun um að stunda ofsaakstur eru afleiðingarnar sem af hljótast varla slys. Ofsaakstur og hraðakstur er einfaldlega ofbeldi og ætti ekki að líðast. Sumir neita að horfast í augu við þetta og tala um slys þegar svona atburðir eiga sér stað en þetta eru ekki slys. Ekki fremur en þegar maður er stunginn, barinn eða kýldur.

Þessi hegðun er afleiðing af ofbeldisdýrkun samfélagsins í garð bíla og aksturs þar sem hraðakstur er talin eðlilegur og karlmannlegur. Við það eitt að setjast undir stýri eru menn taldir öðlast einhvern rétt til að beita aðra í samfélaginu yfirgangi með hávaða, hraðakstri og með því að leggja bílum sínum út um allar trissur.

Því miður er til fólk sem finnst þetta eðlilegt, smart og jafnvel til eftirbreytni. Kaupir sér radarvara í bílinn til að stunda hrað- og ofsaakstur óáreitt. Þetta er fólk sem virkar eðlilegt í alla staði. Eru foreldrar, í vinnu, gengur í jakkafötum og drögtum og eru í fínum stöðum en er ofbeldisfólk að þessu leyti og til eftirbreytni fyrir börnin sín sem halda að þetta sé eðlileg framkoma.

Þar sannast hið nýkveðna að það sem er normið á Íslandi er oft agjörlega klikkað.


mbl.is 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Árni Davíðsson
Árni Davíðsson
Höfundur er líffræðingur og kennari í hjólafærni. Allar skoðanir höfundar eru hans eigin og skal ekki yfirfæra á aðra einstaklinga eða samtök. Tölvupóstur: arnid65@gmail.com

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • HI deiliskipulag
  • Akureyri 10 min kort
  • cars
  • Hagatorg
  • Ellidaarborg

Nýjustu myndböndin

Frá Birkimel á Eiðistorg

Frá Nesveg í Kópavog

Frá Suðurlandsbraut á Birkimel

Frá Eiðistorgi á Laugaveg

Kársnes Höfðabakkabrú Mosfellsbær

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband