Ekki bílastæði

Þetta er ekki bílastæði á skipulagi Háskólans. Þetta er friðland sem er skilgreint sem hverfisverndarsvæði og virðist síðasta skipulagsbreytingin vera frá 2011. Þá var tjörn felld út af skipulagi en fyrra skipulag frá 1998 gerði ráð fyrir tjörn í friðlandinu. Friðlandið er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Norræna hússins og Reykjavíkurborgar.

Þetta er kannski klassískt dæmi um það hvernig stjórnsýslunni er framfylgt af HÍ og Reykjavíkurborg. Friðland notað sem bílastæði í 22 ár frá því skipulag er samþykkt a.m.k.

HÍ hefði auðvitað átt að byggja bílageymslu fyrir löngu og setja gjaldskyldu á öll bílastæði við háskólann, sem stæði undir kostnaði við landnotkun, byggingu, rekstri og viðhaldi bílastæðanna. Þeir sem nota bíla eiga auðvitað að greiða þann kostnað sem af notkun þeirra hlýst. Í staðinn hefur HÍ farið þá leið að hækka "skráningargjöld" og láta þau standa undir æ stærri hluta af rekstri skólans og þar á meðal byggingu og rekstri bílastæða.

Deiliskipulag 2011 á skipulagsvefsjá.

HI_deiliskipulag

 


mbl.is „Er gáttaður á þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Akfeitir nemendur í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík hafa ekkert með bíl að gera og geta farið gangandi, hjólandi eða með strætisvagni í skólann. cool

Svo fer þetta lið, sem rær í spikinu, í ræktina til að reyna að ná því mesta af sér og þá getur það loksins hreyft sig þegar greiða þarf fyrir hreyfinguna.

Þessi vesalings tvítugi maður ætti því að skammast sín, í stað þess að auglýsa það hann hafi farið á bíl í skólann og ekki hugsar hann um gróðurhúsaáhrifin. cool

En hann er kannski fatlaður eins og allir sem aka á þeim hluta Laugavegarins sem er göngugata og reyna að aka þar niður fólk, eins og til að mynda Ólaf Stefánsson, okkar ástkæru handboltahetju og heimspeking.

Hins vegar eru kettir meiri heimspekingar en Ómar Ragnarsson, sem gapir sífellt um flugvöll í Vatnsmýrinni en sem betur fer er þar enginn flugvöllur, enda frekar óhagstætt að lenda flugvélum í mýri. cool

Fjölmargt fiskvinnslufólk sem starfar hjá Brimi (áður HB Granda hf.) úti á Granda býr í Breiðholtinu og ferðast á milli staðanna í strætisvögnum á morgnana og síðdegis, enda eru þessir strætisvagnar þéttsetnir.

Vegalengdin í beinni línu á milli Breiðholts og Háskóla Íslands er um fimm kílómetrar, sem er meðalgönguhraði á klukkustund. cool

Undirritaður hefur gengið á milli Vesturbæjar og Breiðholts á klukkutíma og akfeitur Miðflokkurinn hefur gott af því að ganga af sér spikið.

Móðurafi minn bjó í Breiðholtinu og tók strætisvagn í Vesturbæinn án nokkurra vandkvæða, 100 ára gamall, enda átti hann aldrei bíl. cool

Þorsteinn Briem, 26.8.2020 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Árni Davíðsson
Árni Davíðsson
Höfundur er líffræðingur og kennari í hjólafærni. Allar skoðanir höfundar eru hans eigin og skal ekki yfirfæra á aðra einstaklinga eða samtök. Tölvupóstur: arnid65@gmail.com

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • HI deiliskipulag
  • Akureyri 10 min kort
  • cars
  • Hagatorg
  • Ellidaarborg

Nýjustu myndböndin

Frá Birkimel á Eiðistorg

Frá Nesveg í Kópavog

Frá Suðurlandsbraut á Birkimel

Frá Eiðistorgi á Laugaveg

Kársnes Höfðabakkabrú Mosfellsbær

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband