Lakkrís, kólesterol og salt.

Slök hagstjórn er aðalmeinsemdin í efnahagsstjórn þjóðarinnar. Það væri án efa hægt að hafa stöðugleika og trausta hagstjórn ef stjórnvöld og Seðlabanki myndu ganga í takt og beita aga í hagstjórninni. Við gætum sem best haft sjálfstæða krónu eða evru innan EB ef aga og sjálfstjórn væri beitt, þó tækin sem beitt er við hagstjórnina séu ólík eftir því hvor leiðin er farin.

Því miður hafa bara komið stutt tímabil þar sem stjórnvöld hafa fylgt þessu. Eins hefur Seðlabankinn fram undir það síðasta verið  beygður undir pólitíska duttlunga ríkjandi stjórnvalda. Skelfilegasta dæmið um þesskonar hagstjórn er bólan okkar fyrir hrun þar sem stjórnvöld réru öllum árum að því að skapa ójafnvægi og þenslu. Ef við líkjum efnahagsmálum þjóðarinnar þá við sjúkling með háan blóðþrýsting, gaf læknirinn (stjórnvöld) honum lakkrís, kólesteról og salt og skipuðu honum að hætta að hreyfa sig í staðinn fyrir að gefa sjúklingnum blóðþrýstingslækkandi og temja sér hollari lífsstíl. Um þetta fjallaði ég hér: Krónan - sökudólgur eða blóraböggull?

Hugtök eins og að tala ekki niður eða kjafta upp sýnir á hvaða villigötum menn geta verið. Þar sem traust hagstjórn er þarf ekki að tala niður eða kjafta upp. Þar eru verkin látin tala.

Verstir í augnablikinu eru þeir stjórnmálamenn sem tala af ábyrgðarleysi eins og til séu töframeðöl sem geti leyst öll vandamál  í einni svipan. Leiðin fram undan verður löng, ströng og ekki án fórna eða þjáninga. Það er þó ekki þar með sagt að hún verði leiðinleg eða ástandið skelfilegt. Fram undan er verkefni sem þjóðin getur hlakkað til að leysa vel af hendi.


mbl.is Segir slaka hagstjórn skaðvald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Árni Davíðsson
Árni Davíðsson
Höfundur er líffræðingur og kennari í hjólafærni. Allar skoðanir höfundar eru hans eigin og skal ekki yfirfæra á aðra einstaklinga eða samtök. Tölvupóstur: arnid65@gmail.com

Des. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • HI deiliskipulag
  • Akureyri 10 min kort
  • cars
  • Hagatorg
  • Ellidaarborg

Nýjustu myndböndin

Frá Birkimel á Eiðistorg

Frá Nesveg í Kópavog

Frá Suðurlandsbraut á Birkimel

Frá Eiðistorgi á Laugaveg

Kársnes Höfðabakkabrú Mosfellsbær

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband