Notið Linux kjánarnir ykkar

Þessi bloggfærsla er skrifuð á Ubuntu Linux. Ókeypis stýrikerfi sem er mjög stöðugt, öruggt og hefur aðgang að miklu magni ókeypis hugbúnaðar.

Maður fær sjálfvirkar öryggisuppfærslur og hægt er að stilla á sjálfvirka uppfærslu stýrikerfisins þannig að maður getur alltaf verið með nýjustu útgáfu stýrikerfisins með öllum nýjustu viðbótum og reklum.

Aðgangur er að miklu magni ókeypis hugbúnaðar sem maður velur af netinu í gegnum pakkakerfi sem gerir alla uppsetningu mjög einfalda.

Mynd af skjáborðinu þegar þessi færsla er skrifuð:

Skjáborð Ubuntu


mbl.is Rannsaka „svartan skjá dauðans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, ég get heldur en ekki verið ánægður með nýjustu útgáfuna af Ubuntu sem gerði það að verkum að þráðlausa netkortið í lappanum mínum steinhætti að virka og mun sennilega ekki virka næstu árin nema ég loki fyrir uppfærslur á Ubuntu eða skipti yfir í Windows aftur.

Gulli (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 20:33

2 identicon

Já Ubuntu rokkar! Nota það í vinnunni er reyndar ennþá með Window$ heim þar sem ég nenni ekki að strauja. Það besta er að maður hættir alveg að pæla í mun á þessu, fadear einhvernvegin bara út. Það er því alveg ástæðulaust fyrir fólk að vera með einhvern ótta við að skipta.

Magnús (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 20:49

3 Smámynd: Sveinn Ólafsson

En bíddu, það er brúnt!

Sveinn Ólafsson, 1.12.2009 kl. 23:00

4 Smámynd: Árni Davíðsson

Það er auðvelt að skipta yfir í annað útlit Sveinn ef þér er ílla við bŕuna litinn.

Árni Davíðsson, 2.12.2009 kl. 00:11

5 identicon

Þó ég sé hrifinn af linux er þetta hin mesta einföldun. Linux er ágætt stýrikerfi en það leysir ekki windows af hólmi fyrir stærstan hluta notenda.

Jújú, Linux rokkar en það er bara allt annað.

Kristinn (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 05:41

6 identicon

@Gulli  þú getur notað ethernet kapal þó svo þráðlausa netkortið sé ekki að virka í Ubuntu, ég kemst ekki á netið þráðlaust, en með ethernet kapal þá er allt  í fínu.

Ég ætla ekki að kaupa windows fyrir 20.000 kall þegar ubuntu henta fínt, svo finnst mér að maður ætti að fá windows 7 frítt þar sem maður þurfti að þjást í vista.

Kári (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 06:27

7 Smámynd: Einar Steinsson

Nýjustu fréttir af þessu "Black screan of death" máli er að fyrirtækið sem upphaflega sakaði Microsoft um að valda þessu vandamáli með einhverri uppfærslu er búið að biðja Microsoft opinberlega afsökunar.  Það er komið í ljós að ástæðan fyrir þessu er illa skrifað "Mailware" (spilliforrit) en ekki upfærslan frá Microsoft.

Einar Steinsson, 2.12.2009 kl. 09:24

8 identicon

@Gulli og Kári. Ég lenti í því með Ubuntu 9.10 að stuðningur við þráðlausa netkortið mitt var ekki lengur til staðar. Lausnin var einfaldlega að nota Windows reklana með ndiswrapper - einfalt og ætti að vera uppfærslu-helt ;-)

Þið ættuð að athuga hvort ykkar netkort séu ekki á þessum lista http://sourceforge.net/apps/mediawiki/ndiswrapper/index.php?title=Category:WORKS

Stefán (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 10:11

9 Smámynd: Árni Davíðsson

Ég hef tekið eftir því að sumir verða mjög viðkvæmir þegar ég blogga um Linux og reyna að leggja mér "orð í munn".

Ég er ekki að segja að allir, allstaðar eigi að skipta yfir í Linux. Ég er einfaldlega að benda á að þetta er góður, ókeypis valkostur sem hentar að mínu áliti flestum. Svo geta menn verið ósammála því auðvitað.

Fyrir venjulega heimilistölvu sem er notuð í ritvinnslu, flakk um netið, utanumhald um myndir og að leggja kapal er þetta einfaldlega traustara, ódýrara, öruggara gangvart veirum og hægt að nota eldri vélbúnað. Það virðist fara fyrir brjóstið á ýmsum. Þeir sem spila leiki eða nota hugbúnað sem ekki er til Linux útgáfa fyrir geta prófað Wine eða haldið tölvu áfram með Windows. Á mörgum heimilum eru jú margar tölvur í notkun.

Í skóla- og margskonar fyrirtækjakerfum hentar þetta einnig mjög vel og hægt að spara stóran skilding hjá hinu opinbera og í einkarekstri með því að vera ekki að borga leyfisgjöld til stóra einokunarfyrirtækisins.  Þær tölvur sem þurfa sérhæfðan hugbúnað, bókhald o.fl., má áfram keyra á Windows þar til framleiðendur hugbúnaðarins sjá hag sínum betur borgið með því að búa til útgáfur fyrir Linux.

Árni Davíðsson, 2.12.2009 kl. 10:40

10 identicon

Linux er málið; ég hef verið að kynna Ubuntu, debian og centos undanfarna mánuði.  Niðurstaðan er klárlega sú að allar opinberar stofnanir, fyrirtæki og heimili ættu að notast við stýrikerfi eins og Ubuntu við "venjuleg" dagleg störf, og jafnvel óvenjuleg :)

Mætti ég biðja smásöluaðila um að fara bjóða markvist uppá Linux uppsetningar í stað Windows með nýjum seldum vélum, séu þeir ekki byrjaðir á því núþegar.

(skrifað í Ubuntu)

Marinó Njálsson (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 14:18

11 identicon

Er með nýja vél, og tók þann kostinn að vera með dual boot, - gamla xp-pro og Ubuntu. Fínt meðan maður er að ná tökum á því ;)

Jón Logi (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Árni Davíðsson
Árni Davíðsson
Höfundur er líffræðingur og kennari í hjólafærni. Allar skoðanir höfundar eru hans eigin og skal ekki yfirfæra á aðra einstaklinga eða samtök. Tölvupóstur: arnid65@gmail.com

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • HI deiliskipulag
  • Akureyri 10 min kort
  • cars
  • Hagatorg
  • Ellidaarborg

Nýjustu myndböndin

Frá Birkimel á Eiðistorg

Frá Nesveg í Kópavog

Frá Suðurlandsbraut á Birkimel

Frá Eiðistorgi á Laugaveg

Kársnes Höfðabakkabrú Mosfellsbær

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband