Fjölmiðlar og beint lýðræði

Beint lýðræði er skemmtileg hugmynd og erfitt að standa á mót henni. Mér finnst samt eins og menn tali stundum eins og það sé patent lausn og að beinu lýðræði fylgi engin vandamál.

Skoðanamyndun hjá almenningi ræðst að miklu leyti af fjölmiðlaumhverfinu og hinum almenna anda í samfélaginu. Sá sem ræður yfir fjölmiðlunum ræður því að miklu leyti hvaða skoðanir almenningur aðhyllist.

Beinu lýðræði fylgir því sú hætta, að sterk peningaöfl sölsi undir sig fjölmiðlana og stýri þannig "útkomunni" úr beinu lýðræði. Átökin á síðasta áratug um setningu fjölmiðlalaga og eignarhaldið á fjölmiðlunum og eignarhald kvótakónga á mogganum í dag ætti að sýna okkur að það þarf að fara varlega í að auka beint lýðræði.

Það þarf með einhverjum hætti að tryggja að skoðanamyndun verði ekki of einhliða í samfélaginu og að öll eða flest sjónarmið komist að með sambærilegu vægi.

Ég mundi vara við að treysta um of á nýju netmiðlana og samfélagsvefina. Þeim er hægt að stýra eins og öðru af þeim sem hafa nóga peninga. Þeir mundu einfaldlega kaupa ímynda- og auglýsingastofur til að reka sinn áróður á samfélagsvefjunum og ná með því sama tangarhaldi á skoðanamyndun þar.

Það er hið besta mál að fleiri taki þátt í stjórnmálum í fulltrúalýðræðinu eins og Styrmir stingur upp á. Ætti kannski að kalla það "þáttökulýðræði".


mbl.is Nauðsynlegt að opna flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta vinnsla sem borgar sig?

Það kemur ekki fram í fréttinni hversu hátt verð Elkem borgar fyrir tonnið né heldur hvað vinnslan og flutningurinn kostar.

Er þetta vinnsla sem borgar sig ef vinnulaun og kostnaður við fellingu og flutning er tekinn með í reikninginn?


mbl.is Tæp 30 tonn af viði til Elkem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hætta að niðurgreiða bílastæðin?

HR4Það er til mjög einföld, réttlát og auðveld leið til að leiðrétta þetta ástand sem ég hef fjallað um áður hér.

Einfaldlega að hætta að niðurgreiða bílastæðin við háskólana.

Það kostar að byggja og reka hvert bílastæði og hversvegna ætti það að vera ókeypis fyrir notandann? Land undir bílastæði má líka nota undir eitthvað annað og í því felst líka kostnaður. 

HR loftmynd1Hættum að dekra við bílaeigendur og látum þá borga fyrir sig sjálfa.

 

 


mbl.is Fáir nemendur HR nýta sér strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er umferð sama og samgöngur?

Samgöngur er meira en bara umferð.

Ef tveir fara í bíl þar sem áður var einn eða maður sem áður ók bíl tekur núna strætó er augljóst að samgöngur minnka ekki þótt umferðin minnki. Það er of einfeldningslegt að telja bara bíla og ætla að það endurspegli samgöngur 100%. Það þarf ekki mikið að breytast í vali á samgöngum til að hafa mikil áhrif á umferðina.

Ef við gefum okkur til dæmis að aðeins sé einn í öllum bílum (það mun vera rúmlega einn í hverjum bíl) en að nú verði sú breyting að það séu tveir í ölllum bílum. Umferðin mun þá helmingast en samgöngurnar áfram vera þær sömu. Hvað hefur breyst? Umferð, hávaði, mengun, eyðsla, slys minnka.

Er það slæmt? Eigum við að sjá eftir því? Er samfélagið ekki bara betra á eftir og við í betri málum?

umferd


mbl.is Umferðin áfram lítil á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggt eftir 1976?

Ég held að núverandi hús hafi verið byggt eftir 1976. Sennilega 1978-79.

Ég man eftir að hafa beðið eftir strætó á skiptistöðinni sem var í gömlu bensinstöðinni við Hlemm og það var eftir að ég flutti í Kópavog 1976. Núverandi hús var ekki byggt fyrr en síðar og þá fyrir pönktímabilið eftir 1980. Þá gekk ennþá SVK niður á Hlemm og Lækjartorg. 

Mér líst ágætlega á að það verði starfræktur alvöru matvörumarkaður á Hlemmi með alvöru matvælum. Ekkert fóðurbætis pakkadrasl. Bara það sem þarf í pottinn, alvöru korn, baunir, ávextir, grænmeti, kjöt og fiskur. Smile


mbl.is Miklar breytingar í vændum við Hlemm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oftast góðir vegir

Ég ók hringinn og um Vestfirði í sumarfríinu. Það er auðvitað ekki alsherjarúttekt á vegakerfinu en það kom mér á óvart hvað vegir með bundnu slitlagi voru góðir víðast hvar. Miðað við aðstæður það er að segja því umferð getur varla verið mikil um mest af þessum vegum árið um kring. Maður varð ekki mikið var við holur í vegunum né heldur að uppbygging þeirra væri ónýt eftir þungaumferð nema þá helst í Norðurárdalnum.

Tek undir það að gott væri að breikka vegina og hafa betri vegaxlir. Sumstaðar virðast tvær akreinar í hvora átt vera óskhyggja miðað við breidd. Kannski væri betra að hafa eina akrein í miðjunni og vegaxlir sitthvorum megin til að mætast og taka framúr.  Vegirnir bera þó ekki meiri hámarkshraða en nú er og sumstaðar ætti hann jafnvel að vera lægri á eldri vegum þar sem veglínunni hefur ekki verið breytt í nútímahorf.


mbl.is Vilja breiðari vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ekki að ákæra hann fyrir að stela hjólinu?

Brýtur þetta ekki í bága við almenn hegningarlög og ber lögreglunni ekki að rannsaka málið þegar hún verður áskynja um brot?


mbl.is Fáklæddur á stolnu hjóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknarefni?

Það er rannsóknarefni hversvegna menn telja sig hafa rétt til að vaða yfir samborgara sína bara vegna þess að þeir eru á bíl.

Er ekki einhver sem nennir að rannsaka hvað hrærist í huga fólks sem hagar sér svona? Erum við sem samfélag meðvirkt í þessari hegðun?

Ástandið er svona á fleiri stöðum. Reykjavík er samt eina sveitarfélagið á landinu með samþykkt um bílastöður með heimild í 108. gr. umferðarlaga.

Fyrir nokkrum árum tók ég myndir af öllum ólöglega lögðum bílum við sundlaug Kópavogs eitt síðdegi. Það var eitthvað um 40 bílar sem var lagt upp um allar gangstéttir í kringum laugina og ómögulegt fyrir gangandi að komast um gangstéttirnar. Þó er nóg af bílastæðum við Kópavogskirkju og Salinn örskammt frá. Myndirnar sendi ég á lögregluna og bæjarstjórn. Engin hefur þó verið sektaður þarna enda virðist það stefna í Kópavogi að líða yfirgang bíleiganda gagnvart öðrum bæjarbúum.


mbl.is Skapa hættu fyrir vegfarendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki slys

Þegar menn taka ákvörðun um að stunda ofsaakstur eru afleiðingarnar sem af hljótast varla slys. Ofsaakstur og hraðakstur er einfaldlega ofbeldi og ætti ekki að líðast. Sumir neita að horfast í augu við þetta og tala um slys þegar svona atburðir eiga sér stað en þetta eru ekki slys. Ekki fremur en þegar maður er stunginn, barinn eða kýldur.

Þessi hegðun er afleiðing af ofbeldisdýrkun samfélagsins í garð bíla og aksturs þar sem hraðakstur er talin eðlilegur og karlmannlegur. Við það eitt að setjast undir stýri eru menn taldir öðlast einhvern rétt til að beita aðra í samfélaginu yfirgangi með hávaða, hraðakstri og með því að leggja bílum sínum út um allar trissur.

Því miður er til fólk sem finnst þetta eðlilegt, smart og jafnvel til eftirbreytni. Kaupir sér radarvara í bílinn til að stunda hrað- og ofsaakstur óáreitt. Þetta er fólk sem virkar eðlilegt í alla staði. Eru foreldrar, í vinnu, gengur í jakkafötum og drögtum og eru í fínum stöðum en er ofbeldisfólk að þessu leyti og til eftirbreytni fyrir börnin sín sem halda að þetta sé eðlileg framkoma.

Þar sannast hið nýkveðna að það sem er normið á Íslandi er oft agjörlega klikkað.


mbl.is 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

Það á að rukka kostnaðarverð fyrir bílastæði sem víðast.

Það er nóg ekið á Íslandi og engin engin ástæða til að niðurgreiða bílastæði fyrir notendur þeirra því það hvetur til aksturs.


mbl.is Flugfélagið rukkar fyrir bílastæðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Árni Davíðsson
Árni Davíðsson
Höfundur er líffræðingur og kennari í hjólafærni. Allar skoðanir höfundar eru hans eigin og skal ekki yfirfæra á aðra einstaklinga eða samtök. Tölvupóstur: arnid65@gmail.com

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • HI deiliskipulag
  • Akureyri 10 min kort
  • cars
  • Hagatorg
  • Ellidaarborg

Nýjustu myndböndin

Frá Birkimel á Eiðistorg

Frá Nesveg í Kópavog

Frá Suðurlandsbraut á Birkimel

Frá Eiðistorgi á Laugaveg

Kársnes Höfðabakkabrú Mosfellsbær

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband